Hættir á toppnum eftir glæsilegan feril
Birna Baldursdóttir hefur átt magnaðan íþróttaferil, bæði sem blakari og íshokkíleikmaður. Hún rak endahnútinn á glæstan feril með því að verða Íslandsmeistari með KA í blaki á dögunum þegar liðið sigraði HK í úrslitaeinvíginu. KA varð einnig deildar-og bikarmeistari í vetur.
Birna hefur nú lagt blakskóna á hilluna en óhætt er að segja að hún hætti á toppnum. Vikudagur spjallaði við Birnu en viðtalið má nálgast í prentúgáfu blaðsins eða í rafrænni áskrift sem nálgast má hér.