Gömul lögreglubifreið á uppboði

Lögreglustöðin á Akureyri.
Lögreglustöðin á Akureyri.

Uppboð verður hjá lögreglunni á Akureyri við Þórunnarstræti föstudaginn 21. maí kl. 12:15. Meðal annars verður bifreiðin ZA-N19, KIA Sorento árgerð 2014 sem er gömul lögreglubifreið boðin upp.  Lágmarksboð í bifreiðina verður 500 þúsund kr.

Þá verða boðnir upp óskilamunir sem eru helst reiðhjól og smáhlutir sem verið hefur í vörslum lögreglunnar á Norðurlandi eystra í ár eða lengur. Uppboðið fer fram utandyra og hvetur lögregla við alla að huga vel að sóttvörnum og virða fjarlægðarmörk

Nýjast