13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Góðan dag, ég er frá heimaþjónustunni!
Ungur maður bankaði upp á, kvaðst vera frá heimaþjónustunni og bauðst til að fara í búðina fyrir húsráðenda. Mynd á vefsíðu Lögreglunnar á Akureyri.
Lögreglunni á Akureyri barst fyrr í dag tilkynning um að ungur maður hafi bankað upp á í íbúð hjá fólki og þóst vera frá heimaþjónustunni og kvaðst vera að fara í búðir og bauðst til þess að versla inn fyrir heimilisfólkið.Húsráðandi áttaði sig á því að ekki var um starfsmann heimaþjónustunnar að ræða.
"Við viljum því benda á að starfsmenn heimaþjónustunnar bera allir starfsmannaskírteini sem þeir eiga að geta framvísað og hvetjum við jafnframt aðstandendur til þess að upplýsa þá sem þeir þekkja og njóta stuðnings heimþjónustunnar um þetta," segir í tilkynningu frá lögreglu.
Lögreglan á Akureyri hefur nú uppfært frétt á fésbókarsíðu sinni þar sem fram kemur að umræddur starfsmaður hafi verið á vegum Velferðarsviðs Akureyrarbæjar en húsráðandi þekkti ekki manninn og bjóst ekki við honum á þessum tíma. "Engu að síður er alltaf gott að vera vakandi fyrir þessu og gott að þetta átti ekki við rök að styðjast," segir lögreglan.