27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Giljagaur var annar
Giljagaur er nafnið á öðrum jólasveininum sem kemur til manna, þann 13 desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.
Giljagaur faldi i í fjósinu og fleytti froðuna ofan af mjólkurfötunum þegar færi gafst.
Jóhannes úr Kötlum orti:
Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
Hann skreið ofan úr gili
og skaust i fjósið inn.
Hann faldi sig á básnum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.