Geimfarinn Kathy Sullivan og Belén Garcia Ovide hjá Ocean Missions á Húsavík verðlaunaðar
Geimfarinn Kathy Sullivan hlaut Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar í ár, en þau voru veitt á Húsavík í gær. Það er Könnunarsafnið á Húsavík sem veitir verðlaunin ár hvert, en þetta er í sjötta sinn sem þau eru afhent fyrir afrek í landkönnun og vísindastarfi.
Kathy Sullivan er mikill Íslandsvinur en hún á að baki þrjú geimflug og hefur ferðast 356 sinnum umhverfis jörðina, eða nærri 14 milljón kílómetra í geimnum. Sullivan var í áhöfn geimskutlurnar Discovery sem kom Hubble sjónaukanum á braut um jörðu árið 1990. Þá setti geimskutlan hæðarmet er hún flaug í 621 kílómetra hæð yfir jörðu. Árið 2020 varð Sullivan fyrst kvenna til að kafa niður í Challenger dýpið í Maríanadjúpál, dýpsta parti hafsins sem er um 11 kílómetra undir sjávarmáli. Engin kona hefur þannig kannað staði með meiri hæðarmun, eða samtals 632 kílómetra, 621 km yfir yfirborði jarðar og 11 km undir sjávarmáli.
Árið 2013 skipaði Barack Obama Bandaríkjaforseti hana sem forstjóra NOAA, hafrannsókna- og loftslagsstofnunar Bandaríkjanna. Kathy sem er jarðfræðingur að mennt er mikill Íslandsvinur og hefur heimsótt Ísland við mörg tækifæri.
Þá verðlaunaði safnið Belén Garcia Ovide, stofnanda og forstöðukonu Ocean Missions á Húsavík, en samtök hennar vinna að verndun hafsvæða og kortlagningu á plastmengun í höfum og við strendur Íslands.
Safnið verðlaunaði jafnframt landkönnuðina Will Steger og J.R. Harris frá Bandaríkjunum, Dominique Gonçalves frá Mósambík, og Geoff Green frá Kanada. Formaður dómnenfdar var Jeff Blumenfeld, deildarforseti hjá The Explorers Club í Bandaríkjunum.
Hægt er að lesa um alla verðlaunahafana á vefsíðu safnsins hér