20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Fyrstu hvatningarverðlaunin veitt í Eyjafjarðarsveit
Fyrstu hvatningarverðlaun Eyjafjarðarsveitar voru afhent þeim Páli Snorrasyni, Herði Snorrasyni og Helgu Hallgrímsdóttur í Hvammi fyrir óeigingjarnt framlag þeirra við að prýða umhverfi hjóla- og göngustígsins með skiltum og skúlptúrum.
Að eigin frumkvæði hafa þau lagt sig fram við að upplýsa og fræða gesti stígsins með því að láta hanna og koma fyrir einstaklega smekklegum og skemmtilegum áningarstöðum sem prýddir eru með fjölbreyttum skiltum. Verkinu er að þeirra sögn ekki lokið og er áfram verið að vinna að fleiri skemmtilegum skiltum sem gestir geta notið í framtíðinni.
Íbúar og aðrir ferðalagnar á svæðinu eru hvattir til að gefa skiltunum sérstakan gaum á ferð sinni um hjóla- og göngustíginn milli Hrafnagilshverfis og Akureyrar og auka þannig enn frekar á upplifun sína af svæðinu. Skiltin má finna víða meðfram stígnum, ásamt þeim áningarstöðum sem þau Páll, Hörður og Helga hafa hannað og komið fyrir.