Fyrsti í hálku

Það var vetrarlegt um að lítast á Akureyri í morgun þegar fyrsti snjórinn féll til jarðar. Hiti var við frostmark og hálka á vegum. Umferðin gekk hægt fyrir sig enda flestir enn á sumardekkjum. Það var því nóg að gera á dekkjaverkstæðum bæjarins í morgun þar sem biðraðir mynduðust. Veðurstofan gerir ráð fyrir frosti víða um land á morgun, föstudag, en hlýnandi veðri um helgina.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast