13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Frístundastrætó í haust
Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt beiðni frístundaráðs um að koma á sérstökum Frístundastrætó. Frístundaráði er mjög umhugað um að verkefnið komist á laggirnar og er hluti af því að koma á strætisferðum á strax næsta haust.
Veittur verði viðauki í bæjarráði að upphæð kr. 8.500.000 fyrir þann hluta verkefnisins sem yrði á ábyrgð frístundaráðs. Verkefnið verður tilraunaverkefni veturinn 2021-2022.