Friðlýsingakostir á Langanesi ræddir á íbúafundi
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpaði íbúafund í Þórsveri á Þórshöfn á mánudag. Langanesbyggð boðaði til opins fundar til þess að ræða möguleika á friðlýsingu hluta Langaness. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Vorið 2020 fór Langanesbyggð þess á leit við umhverfis- og auðlindaráðuneytið að gerð yrði greining á mögulegum friðlýsingarkostum á Langanesi. Óskað var eftir því að kostir, tækifæri, takmarkanir og skuldbindingar yrðu m.a. skoðuð ásamt því að leggja mat á hvaða gerðir friðlýsinga kæmu til greina á svæðinu. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið fól Umhverfisstofnun verkefnið.
Á fundinum á mánudag var efni úttektar Umhverfisstofnunar kynnt. Það gerði Davíð Örvar Hansson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og aðalhöfundur skýrslunnar. Þá hélt Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, erindi þar sem hann miðlaði reynslu Snæfellinga af Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Fundinum lauk svo með umræðum.