Frestur um tómstundarstyrk framlengdur
Frestur til að sækja um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki á Akureyri fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum hefur verið framlengdur til 31. júlí 2021. Segir á vef Akureyrarbæjar að stór hluti þeirra sem eiga rétt á styrknum hafi ekki enn sótt um. Styrkirnir eru liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 og koma til viðbótar hefðbundnum frístundastyrkjum sveitarfélaga.
Hægt er að sækja um fyrir börn sem eru fædd 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars-júlí 2020. Styrkurinn nemur 45.000 krónum á hvert barn. Nota má styrkina til þess að greiða niður þátttökugjöld vegna íþróttaiðkunar, tónlistarnáms eða annarra tómstunda.