Framsýn kallar eftir aðgerðum vegna stöðu lágtekjufólks

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar

Framsýn stéttarfélag samþykkti á fundi stjórnar og trúnaðarráðs ásamt stjórn Framsýnar-ung á mánudag að senda frá sér ályktun þar sem þess er krafist að stjórnvöld grípi þegar í stað til tímabundinna aðgerða til að bæta kjör atvinnuleitenda, jafnframt því að auka stuðning við lágtekjufólk til lengri tíma.

Í ályktuninni kemur fram að verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir auknum stuðningi við atvinnuleitendur og að komið verði til móts við lágtekjufólk í landinu með sértækum aðgerðum, bæði karla og konur. „Í dag eru lægstu laun samkvæmt kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands kr. 331.735,- á mánuði, sem er langt undir öllum framfærsluviðmiðum,“ segir í ályktuninni.

Að mati Framsýnar á það að vera eitt af forgangsmálum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að bæta stöðu þessa hóps s.s. með hækkun lægstu launa og hækkunum á barnabótum, vaxtabótum og húsnæðisbótum. Þá verði tímabil atvinnuleysisbóta tímabundið lengt og grunnatvinnuleysisbætur hækkaðar.

Framsýn kallar jafnframt eftir auknum framlögum til byggingar leiguhúsnæðis í almenna íbúðakerfinu og að Bjarg íbúðafélag horfi til þess að byggja eða fjárfesta í íbúðum sem víðast um landið í stað þess að horfa nær eingöngu á suðvesturhornið. 

„Þörfin fyrir ódýrt og öruggt íbúðarhúsnæði er til staðar víða um land. Við því þarf að bregðast með aðkomu stjórnvalda, fjármálastofnanna og verkalýðshreyfingarinnar í gegnum  Bjarg íbúðarfélag, sem ætlað er að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu, án hagnaðarmarkmiða.“ 

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar segir í samtali við Vikublaðið að full þörf sé á úrbótum og er myrkur í máli í garð stjórnvalda. „Það er búið að vera langvarandi atvinnuleysi og fólk er komið í mikil vandræði, þau sem eru búin að vera lengst á atvinnuleysisskrá eru að detta af bótum og þá er ekkert kerfi sem tekur við þessu fólki,“ segir Aðalsteinn en bætir við að almennt vilji hann sjá stuðning við atvinnuleitendur við að finna sér atvinnu

Við viljum líka að það sé stuðningur við atvinnuleitendur, að þeir fái almennt aðstoð við að komast í vinnu aftur. „Nú eru hins vegar uppi sérstakar aðstæður sem gera það að verkum að það er ekki mikið um laus störf í boði. Þess vegna erum við að kalla eftir því að brugðist sé við þessum vanda nú. Svo þegar ástandið lagast þá reiknum við með að flestir fari í vinnu aftur.“

Nýjast