Framlengja gildistíma sundkorta

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Ákveðið hefur verið að framlengja gildistíma sundkorta á Akureyri um þann tíma sem lokað hefur verið vegna Covid-19 sem eru 21 dagur. Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi tillögu þess efnis frá frístundaráði með fimm samhljóða atkvæðum. Greint er frá þessu á vef bæjarins.

Gildir þetta um svokölluð tímabilskort; 3 mánaða, 6 mánaða og 12 mánaða kort sem fólk hefur ekki getað notað til fulls á árinu 2021 vegna lokana í sundlaugum sveitarfélagsins af völdum faraldursins.  Er þetta liður í fjölbreyttum mótvægisaðgerðum Akureyrarbæjar vegna Covid-19 sem gripið hefur verið til undanfarið ár. Áður hafði gildistími sundkorta verið framlengdur um 40 daga vegna þess tíma sem sundlaugar voru lokaðar á haustmánuðum 2020. 

Nýjast