6. nóvember - 13. nóvember - Tbl 45
Framboðslisti L-listans til sveitastjórnarkosninga á Akureyri árið 2022
Framboðslisti L-listans á Akureyri hefur verið samþykktur en það er Gunnar Líndal Sigurðsson sem leiðir listann.
„L-listinn býður fram öflugan hóp af fólki til starfa fyrir bæjarfélagið í sveitastjórnarkosningunum í vor. Þrjú af sex efstu sætum eru skipuð kraftmiklu nýju fólki sem verða studd af reynsluboltum fyrri ára. Eins og alltaf stendur L-listinn fyrst og fremst fyrir hag bæjarbúa og styrkur listans liggur í að virkja gott fólk til góðra verka," segir í tilkynningu sem send var fjölmiðlum í dag.
„Á síðasta kjörtímabili hefur L-listinn átt frumkvæðið að djörfum breytingum á starfsháttum bæjarstjórnar á erfiðum tímum og við teljum að bæjarfélagið sé að sjá afraksturinn af því nú. Skilyrði til endurbóta og bættrar þjónustu við bæjarbúa eru mun betri en mátti eiga von á og er það samstilltu átaki að þakka. Framboðslistinn fyrir kosningarnar 2022 endurspeglar þá stefnu L-listans að byggja á árangri síðustu ára á sama tíma og nýjum og ferskum hugmyndum er gefið brautargengi,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Framboðslisti L-listans til sveitastjórnarkosninga árið 2022 er eftirfarandi:
- Gunnar Líndal Sigurðsson Forstöðumaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttir ÍAK Einkaþjálfari
- Halla Björk Reynisdóttir Bæjarfulltrúi
- Andri Teitsson Bæjarfulltrúi
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir Lífeindafræðingur
- Geir Kristinn Aðalsteinsson Mannauðsstjóri
- Birna Baldursdóttir Íþróttafræðingur
- Jón Þorvaldur Heiðarsson Lektor HA
- Sigríður María Hammer Viðskiptafræðingur
- Hjálmar Pálsson Sölumaður
- Ýr Aimée Gautadóttir Presburg Stjórnmálafræði nemandi
- Víðir Benediktsson Skipstjóri
- Ólöf Inga Andrésdóttir Skólastjóri
- Arnór Þorri Þorsteinsson Verkefnastjóri
- Brynhildur Pétursdóttir Framkvæmdastjóri
- Helgi Haraldsson Tæknifræðingur
- Anna Fanney Stefánsdóttir Sjúkraliði
- Sæbjörg Sylvía Kristjánsdóttir Rekstrarfræðingur
- Preben Jón Pétursson Frv. bæjarfulltrúi
- Anna Hildur Guðmundsdóttir Frv. bæjarfulltrúi
- Matthías Rögnvaldsson Frv. bæjarfulltrúi
- Oddur Helgi Halldórsson Frv. bæjarfulltrúi