Fór betur en áhorfðist
Fyrr í dag barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar neyðarboð frá litlum fiskibát sem þá var staddur afar nærri landi, norðarlega í mynni Ólafsfjarðar og hafði fengið í skrúfuna.
Þetta segir i tilkynningu frá Landbjörgu
Björgunarsveitin Tindar Ólafsfirði og Björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði voru kallaðar út á mesta forgangi, því um tíma leit út fyrir að bátinn myndi reka í strand og aðgerðastjórn var virkjuð á Akureyri.
Björgunarmenn frá Tindum héldu út á 2 björgunarþotum, (jetski) og komu taug um borð í bátinn. Skipverji hafði þá varpað akkeri sem náði haldi í botni þannig að ekki var lengur yfirvofandi hætta á strandi. Næst var báturinn um 280 metra frá landi og ljóst að illa hefði getað farið.
Skömmu síðar kom björgunarskipið Sigurvin á vettvang og tók bátinn í tog og dró inn til hafnar á Ólafsfirði.