Flatirnar koma vel undan vetri á Jaðarsvelli og æfingasvæðið að opna

Mynd/Golfklúbbur Akureyrar.
Mynd/Golfklúbbur Akureyrar.

Klappir, æfingasvæðið á Jaðarsvellinum hjá Golfklúbbi Akureyrar, opnar á morgun, fimmtudaginn 25. mars. Á vef Golfklúbbsins segir að hlýir sunnan vindar hafi blásið síðustu daga og sólin skinið skært. „Allar flatir Jaðarsvallar eru því lausar við snjó og klaka, var það kærkomið eftir snjóþungan tíma á nýju ári,“ segir á vef GA.

Starfsmenn hafa unnið hörðum höndum í vetur að létta á snjó og tryggja það að snjór og klaki fari af flötunum eins fljótt og mögulegt er. Flatirnar eru sagðar í góðu ásigkomulagi, „og því full ástæða til að láta sig hlakka til sumarsins.“

Nýjast