Farfuglaheimilið á Dalvík efst á heimslistanum

Þeir sem bóka gistingu á Farfuglaheimilum gegnum bókunarvél alþjóðasamtaka Farfugla – Hostelling International – gefst tækifæri til þess að gefa heimilunum sem þeir hafa dvalið á einkunn.  Alls eru tæplega 3000 heimili um allan heim bókanleg  á bókunarvélinni, þar af 28 íslensk.  Árangur íslensku  heimilanna í þessari einkunnargjöf hefur verið frábær,  og sem dæmi um það er að eftir fyrstu 10 mánuði ársins voru  íslensk heimili í fyrsta, fimmta og sjötta sæti listans og 11 heimili voru meðal 50 efstu. 

Á árlegum fundi rekstraraðila Farfuglaheimilanna sem haldin var sl. helgi fengu þrjú  heimili viðurkenningu fyrir frábæran árangur. Voru þetta Farfuglaheimilin á Dalvík sem er í efsta sæti listans, Farfuglaheimilið Loft í Reykjavík sem er í 5. sæti og Farfuglaheimilið á Kópaskeri sem er í því sjötta.

Á meðfylgjandi mynd eru rekstraraðilar heimilanna sem fengu viðurkenningu. Talið frá vinstri: Anna Jóna Dungal, móttökustjóri Farfuglaheimilisins Lofts, Aðalheiður Símonardóttir, eigandi Farfuglaheimilisins á Dalvík og Benedikt Björgvinsson, eigandi Farfuglaheimilisins á Kópaskeri.

Nýjast