Falsaðir 10 þúsund seðlar í umferð norðan heiða

Falsaðir 10 þúsund króna seðlar eru í umferð norðan heiða.
Falsaðir 10 þúsund króna seðlar eru í umferð norðan heiða.

Nú síðustu daga hafa komið þrjú mál á borð lögreglu sem varða viðskipti aðila með falsaða 10 þúsund króna seðla. Seðlarnir eru frekar illa falsaðir segir lögregla á facebook síðu sinni, en samt sem áður geta  seðlar af þessu tagi farið fram hjá afgreiðslufólki og menn náð að svíkja út vörur og þjónustu. því miður. Beinir lögregla því til fólks að vera á varðbergi gagnvart þessum fölsuðu seðlum og gruni menn að þeir hafi einn slíkan í höndunum eru þeir fyrir alla muni beðnir að hafa samband við lögreglu á Norðurlandi eystra.

 

Nýjast