13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Fækkar um tvo í einangrun á Norðurlandi eystra
Á Norðurlandi eystra eru nú 100 í einangrun með kórónuveirusmit og 143 í sóttkví samkvæmt tölum covid.is. Fækkar því um tvo á milli daga í einangrun. Tveir eru inniliggjandi með Covid-19 á Sjúkrahúsinu á Akureyri og þar af einn á gjörgæslu.
Alls greindust 18 kórónuveirusmit innanlands í gær. Nú eru 472 í einangrun á Íslandi en voru 542 í gær og hefur því fækkað um 70 á milli daga. Af þeim sem greindust innanlands í gær voru 14 eða 77,78% í sóttkví.