27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Endurbætur á Garðari á áætlun
Vinna við endurbætur á Garðari, syðri hluta Kaupfélagshússins, er í aðalatriðum skv.áætlun. Greint er frá þessu á Facebooksíðu GB5 sem er eigandi hússins.
Þar segir að búið að hreinsa innan úr kjallara og jarðhæð þ.m.t. að fjarlæga gólf og loft þar á milli. Nokkur vinna sé eftir í kjallaranum áður en hægt verði að hefjast handa við að byggja aftur upp nýtt gólf. Vinna við að hreinsa innan úr annarri hæð stendur yfir. Búið sé að taka grunn fyrir nýja viðbyggingu, kjallara og eina hæð.
„Um er að ræða viðamikið og metnaðarfullt verkefni sem eigandi hússins, Gb5 ehf stendur fyrir. Megintilgangur með þessu stóra verkefni er að endurnýja og færa húsið til nútímans, en hafa þó í heiðri sögu þess og útlit eins og áður hefur verið vikið að á þessum vettvangi. Þannig verður t.d. gólf jarðhæðar ekki lengur á stöllum eins og var, og í sömu hæð og í anddyrinu,“ segir í færslunni.
Útibú Íslandsbanka mun síðan flytja á jarðhæð Kaupfélagshússins (Garðar) þegar framkvæmdum lýkur eins og greint hefur verið frá áður.