20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Eldur í íbúðarhúsi
Eldur kom upp í íbúð við Snægil laust fyrir kl. 8 í morgun og lagði talsverðan reyk frá húsinu þegar slökkvilið kom að.
Eldur kom upp í íbúð við Snægil laust fyrir kl. 8 í morgun og lagði talsverðan reyk frá húsinu þegar slökkvilið kom að.
Fjórar íbúðir eru í húsinu og er það á tveimur hæðum. Allir íbúar hússins komust út af sjálfsdáðum áður en slökkvilið kom á vettvang. Kom eldurinn upp í íbúð á neðri hæð og ljóst að þar eru talsverðar skemmdir. Vel gekk að slökkva eldinn þá var íbúðin reykræst.
Lögreglan á Akureyrar fer með rannsókn málsins en eldsupptök eru ókunn enn sem komið er.