27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Ekkert ferðaveður á Norðurlandi
Gul veðurviðvörun hefur tekið gildi á öllu Norðurlandi sem og á Vestfjörðum vegna hvassviðris eða storms. Búast má við snjókomu, skafrenningi og blindu víða á vegum á þessum svæðum og því ekkert ferðaveður.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni eru einnig líkur á snjóflóðahættu á utanverðum Tröllaskaga.
„Líklega verður færð á vegum afar erfið og jafnvel ófært víða á sunnudag og fram eftir mánudegi, gangi veðurspár eftir. Vegagerðin hvetur fólk til að vera ekki á ferðinni þar sem veður verður verst,“ segir í tilkynningunni.
Þá eru aðilar í ferðaþjónustu hvattir til að miðla upplýsingum til ferðamanna.
Á upplýsingasíðu Vegagerðarinnar www.umferdin.is er alltaf hægt að nálgast nýjustu upplýsingar um færð á vegum. Minnum einnig á enska vefinn, www.trafficinfo.is