Einn bær til viðbótar rýmdur í Útkinn

Hlíðin fyrir ofan bæinn Björg í Útkinn, þar hafa fjölmargar skriður fallið. Fimm bæir voru rýmdir í …
Hlíðin fyrir ofan bæinn Björg í Útkinn, þar hafa fjölmargar skriður fallið. Fimm bæir voru rýmdir í nótt og einn til viðbótar fyrr í dag. Myndin er af facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra
 
Bærinn Nípá í Útkinn hefur verið rýmdur auk þeirra fimm bæja sem rýmdir voru í nótt. Óvenju mikil úrkoma hefur verið á svæðinu og mikið vatn er enn í fjallshlíðum. Fjölmargar aurskriður hafa fallið á stóru svæði og er hættustig enn í gildi á svæðinu.
 
Þyrla landhelgisgæslunnar tók myndir af fjallshlíðum í dag og hefur ferjað íbúa á þeim bæjum sem voru innlyksa. Bændur hafa notið aðstoðar björgunarsveita til að komast til mjalta í dag. Að loknum stöðufundi með Veðurstofu Íslands var ákveðið að rýming standi enn yfir en næsti stöðufundur verður haldinn um hádegi á morgun. Meðfylgjandi eru myndir af hlíðinni fyrir ofan Björg og skriðuföllum í Útkinn.
 
Óvissustig er enn í gildi fyrir Tröllaskaga og enn er úrkoma á svæðinu. Í nótt voru um 70 viðbragðsaðilar að störfum í Ólafsfirði en tilkynnt var um vatn í 18 húsum og tjón talið töluvert. Þá mynduðust stór lón í bænum sem verið er að létta á. Viðbragðsaðilar frá lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitum ásamt starfsmönnum sveitarfélagsins hafa verið að störfum frá því rétt fyrir miðnætti.
 

Nýjast