Eining-Iðja Nýr samningur við SA samþykktur
Í dag kl. 12:00 lauk atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Atkvæðagreiðslan fór fram inn á Mínum síðum félagsins.
Samningurinn var samþykktur með 83,93% greiddra atkvæða félagsmanna Einingar-Iðju. Kjarasamningurinn gildir því afturvirkt fyrir félagsmenn frá 1. nóvember sl. til 31. janúar 2024.
- Á kjörskrá 3530. 921 Kusu eða 26,09%
- Já sögðu 773 eða 83,93%
- Nei sögðu 93 eða 10,10%
- Tóku ekki afstöðu 55 eða 5,97%
Frá þessu er greint á heimasíðu Einingar-Iðju rétt í þessu