Eftirminnilegasta jólagjöfin ,,þegar minn besti gaf mér miða á tónleika með Bruce Springsteen"
Vefurinn setti sig i samband við valinkunna Norðlendinga og sendi þeim nokkrar spurningar tengdum jólum og aðdraganda þeirra vildi hvað skiptir fólk máli á þessum tíma og hver væri eftirminnilegasta jólagjöfin amk. enn sem komið er. Það er Inga Vestmann í Pedrómyndum og ein aðalkonan í Dekurdögum sem fram fara í október hér í bæ árlega.
Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Eftirminninlegasta jólagjöfin mín er klárlega þegar minn besti gaf mér miða á tónleika með Bruce Springsteen á United Center í Chicago fyrir ca. 25 árum síðan. Magnaðir tónleikar sem ég gleymi aldrei.
Uppáhalds jólahefðin?
Ég á mér enga sérstaka uppáhalds jólahefð held ég. Á aðventunni fer allt á fullt í vinnunni og eyðum við fjölskyldan ómældum tíma þar saman og það er okkar jólafílingur.
Mikilvægast yfir hátíðarnar?
Það sem mér finnst mikilvægast yfir hátíðarnar er að eiga dýrmætar samverustundir með fólkinu mínu, borða góðan mat og slaka á.
Gleðileg jól!