Edelweiss Air flýgur til Akureyrar frá Zurich

Eitt fremsta flugfélag Sviss, Edelweiss Air, mun hefja áætlunarflug til Akureyrar frá Zurich næsta s…
Eitt fremsta flugfélag Sviss, Edelweiss Air, mun hefja áætlunarflug til Akureyrar frá Zurich næsta sumar. Flogið verður á föstudagskvöldum til Akureyrar og svo strax til baka til Zurich í næturflugi.

Eitt fremsta flugfélag Sviss, Edelweiss Air, mun hefja áætlunarflug til Akureyrar frá Zurich næsta sumar. Flogið verður á föstudagskvöldum til Akureyrar og svo strax til baka til Zurich í næturflugi. Edelweiss hefur selt ferðir til Keflavíkur um árabil og hefur í vetur boðið upp á vetrarflug til Íslands í fyrsta sinn. Félagið hefur því mikla trú á Íslandi sem áfangastað og sér góð tækifæri til þess að koma með enn fleiri farþega til landsins í gegnum Akureyrarflugvöll, þá sérstaklega farþega sem hafa áður komið til Íslands og vilja ferðast víðar um landið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðstofu Norðurlands.

 

Mögulegt verður að bóka sér flug frá báðum flugvöllum í sömu bókun, þannig að komið er til Akureyrar og farið heim frá Keflavík eða öfugt. Auk þess býðst Íslendingum sá möguleiki að fljúga beint til Sviss frá Akureyri.  Þetta fyrsta sumar verða ferðir í boði á sjö vikna tímabili, frá 7. júlí til 18. ágúst en félagið stefnir að því að lengja tímabilið árið 2024 í fjóra mánuði.

 

Gleðiefni fyrir norðlenska ferðaþjónustu

„Það er mikið gleðiefni fyrir norðlenska ferðaþjónustu og Norðlendinga almennt, að Edelweiss hafi ákveðið að bæta áfangastaðnum Norðurlandi inn í sitt leiðakerfi. Það sýnir okkur að Edelweiss hefur trú á áfangastaðnum og sér framtíðartækifæri í þróun ferðaþjónustu hér. Það sýnir okkur líka að markvisst markaðsstarf, á borð við það sem hefur verið unnið í Flugklasanum, og þolinmæði skilar árangri. Flugklasinn hefur undanfarin ár átt í góðum samskiptum við ferðasöluaðila í Sviss sem hafa sýnt þessu áhuga. Samstarf okkar við Austurbrú, Íslandsstofu og Isavia um markaðssetningu á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum hefur svo aukið slagkraftinn í okkar vinnu og það skilar sér í þessum áfanga.  Eftirspurn eftir því að fljúga beint til Akureyrar og Egilsstaða fer vaxandi og ég trúi því að við sjáum áframhaldandi fjölgun á komum erlendra flugfélaga á næstu misserum,“ segir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands.

 

Bjóða upp á flug frá júní fram til september

 

„Edelweiss Air er leiðandi flugfélag í Sviss, og býður upp á beinar flugferðir frá Zurich til 89 áfangastaða um allan heim – og árið 2023 bætist Akureyri í þann hóp. Ísland er einn af þeim áfangastöðum sem eru hvað vinsælastir yfir sumarið hjá Svisslendingum. Við höfum boðið upp á áætlunarflug til Keflavíkur með góðum árangri síðustu tvö ár og sjáum fjölda farþega skoða allt landið yfir sumartímann, og þeir sýna náttúru Norðurlands sérstakan áhuga. Með því að bjóða upp á beint flug til Norðurlands vonumst við til þess að geta boðið ferðalöngum frá Sviss upp á enn auðveldari leið til að komast á Norðurland. Hægt er að fljúga til Akureyrar og Keflavíkur en svo heim frá öðrum hvorum flugvellinum, sem skapar marga möguleika í skipulagningu ferðalaga, eftir því sem hentar hverjum og einum. Okkar áætlanir fyrir framtíðina er að bjóða upp á flug frá júní til september. Þegar við höfum náð árangri með þær, munum við svo skoða framhaldið betur,“ segir í tilkynningu frá Edelweiss Air.

Nýjast