Demantshringurinn formlega opnaður
Formleg opnun Demantshringsins verður á laugardaginn næsta, 22. ágúst. „Demantshringurinn er stórkostlegur 250 kílómetra langur hringvegur á Norðurlandi, en þar er að finna magnaðar náttúruperlur og skemmtilega afþreyingu,“ segir í tilkynningu.
Markaðsstofa Norðurlands (MN) hvetur sérstaklega fólk í ferðaþjónustu til að mæta á viðburðinn, sem hefst kl. 13.
Athygli er vakin á því að þar sem ekki mega fleiri en 100 manns koma saman í einu, þá verður fólk að skrá sig á viðburðinn á heimasíðu North Iceland.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri MN opnar viðburðinn með ávarpi en einnig taka til máls ráðherrar og sveitarstjóri Norðurþings.