Vill enda ferilinn hjá Þór
Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson hefur búið á Bretlandi undanfarin sex ár en hann leikur sem kunnugt er með Cardiff City í ensku úrvalsdeildinni. Aron er einnig fyrirliði íslenska knattspyrnuliðsins sem hefur unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með frábærum árangri í undankeppni HM. Vikudagur sló á þráðinn til Arons og ræddi við hann um HM-drauminn og lífið úti í Bretlandi.
-Hvernig líkar þér lífið í Wales?
Mér líður afskaplega vel hérna og er búinn að koma mér vel fyrir. Ég er samt mikill Akureyringur í mér og sakna alltaf heimaslóðana, segir Aron, sem vill gjarnan enda knattspyrnuferlilinn með sínu gamla félagi, Þór á Akureyri.
throstur@vikudagur.is
Þetta er aðeins brot úr ítarlegu viðtali við Aron sem finna má í prentútgáfu Vikudags