Nær væri að setjast við samningaborðið
Samninganefnd Einingar-Iðju í Eyjafirði tekur heilshugar undir yfirlýsingu samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands um að auglýsing Samtaka atvinnulífsins sé ósmekkleg og hrokafull. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu í morgun. Þar kemur fram að verðbólga sé launahækkunum hjá almennu launafólki að kenna. Þetta er skrumskæling á sannleikanum. Það er ekkert minnst á launskrið til þeirra sem hærri hafa launin. Þau eru ákveðin af atvinnurekendum sjálfum. Það er ekkert minnst á hækkanir á vöruverði, sem eru lagðar á áður en nýir samningar taka gildi. Það er ekkert minnst á gjaldskrárhækkanir á opinberri þjónustu, sem eru tilkomnar af versnandi stöðu sveitarfélaganna og annarra opinberra stofnana. Það er engum til framdráttar að kjarasamningaviðræður fari fram í auglýsingatímum fjölmiðla, heldur væri nær að setjast að samningaborði og semja við launafólk um sanngjörn kjör, segir í ályktun Einingar Iðju.