Mandala/Munstur
Síðasta sýningaropnun ársins í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri verður á morgun þegar Guðbjörg Ringsted og Rannveig Helgadóttir opna sýninguna Mandala/Munstur í Ketilhúsinu.
Guðbjörg Ringsted var bæjarlistamaður Akureyrar 2012 en á því ári voru 30 ár liðin síðan hún hélt sína fyrstu einkasýningu á Akureyri. Það var við vinnu með blýantinn árið 2007 sem lauf og blóm fóru fyrst að birtast í verkum Guðbjargar. Fljótlega skipti hún blýantinum út fyrir pensil og akrýlliti og plöntumunstrin héldu áfram að blómstar með tilvísunum í þjóðbúning íslenskra kvenna.
Mandalan, sem grundvallast á hringforminu og margþættum munstrum því tengdu, skipar öndvegi í málverkum Rannveigar Helgadóttur. Orðið mandala er ættað úr sanskrít og merkir "heilagur hringur" eða hringrás eilífðarinnar og táknar alheiminn og eðli hins guðlega. Um þúsundir ára hafa frumbyggjar Norður-Ameríku, hindúar og búddistar notað mandölur við hugleiðslu til að skerpa meðvitund sína og koma á jafnvægi líkama hugar og anda.