Lengsta rennibraut landsins verður í Sundlaug Akureyrar

Núverandi rennibraut/mynd þröstur ernir
Núverandi rennibraut/mynd þröstur ernir

Þrjú tilboð bárust í nýjar rennibrautir í Sundlaug Akureyrar og vill íþróttaráð bæjarins að  tekið verði tilboði sem hljóðar upp á nærri 100 milljónir króna, en alls bárust þrjú tilboð.

Um er að ræða þrjár rennibrautir, tvær stórar og barnabraut. Stærsta rennibrautin í tilboðinu sem íþróttaráð vill taka,  er 105 metra löng. Það er því næsta víst að á næsta ári verður sett upp lengsta rennibraut landsins, en um 40 sekúndur tekur að renna sér niður brautina.

Rennibrautin sem nú er til staðar var sett upp í maí árið 1994 og er orðin erfið í viðhaldi.

Nýjast