Korter í kosningar-hver er staðan?
Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, fer yfir stöðuna í stjórnmálunum fyrir kosningarnar á laugardag á kosningatorgi í stofu M101 í HA á morgun, miðvikudaginn 28. maí kl 12:00. Grétar mun fara yfir stöðu kannana og spá í spilin fyrir Akureyri, Reykjavík og á landsvísu. Fundarstjóri verður Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.