Kokkalandsliðið í æfingabúðum á Akureyri

Kokkalandsliðið
Kokkalandsliðið

Kokkalandsliðið er í æfingabúðum á Icelandair hótelinu á Akureyri þessa dagana, en liðið æfir fyrir Heimsmeistarakeppni kokkalandsliða sem haldin verður í Luxembourg í nóvember á næsta ári. Þátttaka í keppni sem þessari krefst mikils undirbúnings og er því mikilvægt fyrir liðið að koma saman til að geta einbeitt sér að því að undirbúa öll þau smáatriði sem fylgir matargerðinni.

Í Heimsmeistarakeppninni er keppt í tveimur greinum, annars vegar í að laga margskonar veislurétti sem eru sýndir kaldir á sérútbúnu uppstilltu borði. Það eru mörg handtök við að búa til allar einingarnar sem settar eru á kalt borð sem þetta, fingramatur, forréttir, aðalréttir, eftirréttir og konfektmolar auk þess sem borðið er skreytt með stóru sykurlistaverki. Hinn hluti keppninnar er veislumáltíð fyrir þriggja rétta matseðil. Þá er eldað fyrir 110 manns og maturinn afgreiddur líkt og um veitingastað væri rað ræða.

Í æfingabúðunum á Akureyri ætlar Kokkalandsliðið að matreiða og útbúa kalt borð sambærilegt við það sem verður í keppninni sjálfri að ári liðnu. Þegar borðið hefur verið sett upp verða sérstakir dómarar fengnir til að dæma afraksturinn samkvæmt alþjóðlegum reglum matreiðslumeistara.

Í Kokkalandsliðinu eru:

Hákon Már Örvarsson faglegur framkvæmdastjóri, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri, Bjarni Siguróli Jakobsson, Axel Clausen, Hrafnkell Sigríðarson, Daníel Cochran, Garðar Kári Garðarsson, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafsson, Arnar Jón Ragnarsson og María Shramko sem er meistari í sykurskreytingum.

Nýjast