Dalvíkurbyggð endurskoðar hækkanir
Fyrr í mánuðinum sendi Eining-Iðja fyrirspurn á öll sveitarfélög á svæðinu og óskaði eftir upplýsingum hvort áætlað sé í fjárhagsáætlun viðkomandi sveitarfélags að hækka gjaldskrár þess fyrir næsta ár. Í gær barst fyrsta svarið. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að endurskoða áformaðar breytingar á þeim þjónustugjaldskrám sem taka áttu gildi 1. janúar nk. Með þessari ákvörðun vill sveitarstjórn leggja af mörkum til að sporna við verðbólgu og auka kaupmátt komandi kjarasamninga. Sveitarstjórn telur að allir verði að bera sameiginlega ábyrgð og vinna saman að því markmiði. Þetta kemur fram á heimasíðu Einingar-Iðju.