Bandarísk flugsveit kemur til loftrýmisgæslu
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst í gær með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 200 liðsmenn þeirra taka þátt í verkefninu. Koma þeir til landsins með F-15 orrustuþotur, C-130 björgunarflugvél og eldsneytisbirgðavél.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár. Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og hugsanlega Egilsstöðum 6. - 9. nóvember.