Brýnt að flýta gerð hringtorgs

Skipulagsráð Akureyrarbæjar telur miklvægt að Vegagerðin hraði gerðar hringstorgs við gatnamót Þjóðv…
Skipulagsráð Akureyrarbæjar telur miklvægt að Vegagerðin hraði gerðar hringstorgs við gatnamót Þjóðvegar 1 og Eyjafjarðarbrautar eystri.

„Hótelbygging á umræddum stað mun vafalítið auka umferð gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarenda um Leirustíg,“ segir í umsögn Akureyrarbæjar sem Eyfjarðarsveit óskað eftir vegna breytinga á Aðalskipulagi sveitarfélagsins 2018 til 2030 og deiliskipulagi baðstaðar í landi Ytri-Varðgjár vegna áforma um hótelbyggingu með allt að 120 herbergjum.

Skipulagsráð Akureyrarbæjar gerir ekki athugasemdir við tillögurnar en bendir á aukna umferð vegfarenda um Leirustíg í kjölfar hótelbyggingar. Því sé brýnt að Vegagerðin flýti áætluðu hringtorgi á gatnamótum Þjóðvegar 1 og Eyjafjarðarbrautar eystri og göngubrú yfir Eyjafjarðará meðfram Leirubrú. Jafnframt telur skipulagsráð mikilvægt að Eyjafjarðarsveit haldi áfram með stíginn sem verið er að leggja meðfram Leiruvegi svo ná megi öruggri tengingu yfir þjóðveginn að Vaðlaskógi, Skógarböðunum og fyrirhuguðu hóteli.

Nýjast