Brúin yfir Skjálfandafljót einungis opin fólksbílum-
Brúin yfir Skjálfandafljót við Ófeigsstaði í Kinn verður frá og með 1. júní 2023 einungis opin fólksbílum. Vöru- og fólksflutningabifreiðum verður óheimilt að aka yfir brúna. Þeim bifreiðum verður beint á Hringveg (1) um Fljótsheiði og Aðaldalsveg (845). Mælt er með því að sem flestir vegfarendur fari þá leið sem er einungis 5,5 km lengri. Með fólksflutningabifreiðum er átt við bifreiðar sem taka fleiri en átta farþega.
Þungaflutningar með þyngstu ökutækjum hefur þegar verið takmarkaður yfir brúna og hefur verið þannig um langa hríð. Með aðgerðum á árunum 2015 og 2016 var burðarþol brúarinnar styrkt. Töluverðar steypuskemmdir hafa hins vegar orðið á brúnni að undanförnu og vegrið er ótryggt. Brúin er komin til ára sinna en hún er síðan árið 1935. Ekki er unnt að gera við eða styrkja brúna nema með miklum tilkostnaði og tímafrekum viðgerðum. Því er brugðið á það ráð að takmarka umferð um brúna. Hámarkshraði verður áfram 30 km/klst. yfir brúna.
Áformað er að hefja framkvæmdir við nýja brú yfir fljótið árið 2026, undirbúningur fyrir það verk er í gangi. Miðað við þessi áform yrði brúin tekin í notkun á árinu 2028. Reikna má með að þessar takmarkanir verði í gildi þar til ný brú hefur verið tekin í notkun og sú gamla aflögð.
Fjöldi varúðarskilta verður settur upp við brúna, þar sem varað er við ástandi hennar og ökuhraði lækkaður. Mikilvægt er að vegfarendur virði þær takmarkanir. Hjáleiðir fyrir stærri bifreiðar verða merktar sérstaklega beggja vegna,