Börn komi ekki í heimsókn á sjúkrahúsið

Nýjar reglur varðandi heimsóknir til sjúklinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri tóku gildi í dag. Vegna auk…
Nýjar reglur varðandi heimsóknir til sjúklinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri tóku gildi í dag. Vegna aukins fjölda smita hjá börnum á síðustu dögum þykir rétt að loka fyrir heimsóknir þeirra tímabundið, nema í undantekningartilvikum. Mynd MÞÞ
Í ljósi aukinna smita hjá börnum í samfélaginu þykir rétt að taka fyrir heimsóknir þeirra á SAk tímabundið, nema í undantekningartilvikum. Þetta ákvað viðbragðsstjórn Sjúkrahússins á Akureyri í dag.

Þá beinir viðbragðsstjórn SAk þeim tilmælum til fólks að heimsækja ekki veika aðstandendur fyrr en 14 dögum eftir heimkomu erlendis frá.

"Ef aðstæður eru þannig að heimsókn er metin mikilvæg er heimsóknargestur beðinn um að vera með skurðstofugrímu og spritta hendur. Þetta gildir aðeins að því gefnu að viðkomandi hafi engin einkenni sem geta bent til COVID-19 eða hafi umgengist einstakling með sjúkdóminn á síðustu 14 dögum. Skurðstofugrímu er hægt að kaupa í apóteki eða nálgast á deild sjúklings í samráði við starfsfólk," segir í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og birt er á vefsíðu  SAk .

Heimsóknir verða leyfðar segir ennfremur en ýmsar takmarkanir eru settar. Þannig mega tveirgestir koma í heimsókn á dag, til hvers sjúklings, en lokað er fyrir heimsóknir barna eins og fyrr segir nema í undantekningartilfellum.

Breytingar á heimsóknartíma tóku gildi í dag, 1. október. Gert er ráð fyrir að heimsóknarreglur verði endurmetnar.

 

Nýjast