Bólusetningar hefjast á ný á Akureyri

Mynd/MÞÞ
Mynd/MÞÞ

Bólusetningar hefjast á ný nú á nýju ári í Slökkvistöðinni á Akureyri en bólusett verður á morgun, fimmtudaginn 6. janúar frá kl. 13 til 16.

Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar að lágmarki 5-6 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu. Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki hafa getað nýtt sér fyrri boð er velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri.  Ekki er þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn.

Bólusettir einstaklingar 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu.  Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í sína fyrstu bólusetningu í fylgd forráðamanna. Bólusett verður með Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.

Nýjast