Bólusetningar halda áfram á Norðurlandi-Rúmlega þúsund skammtar bárust í gær

Bólusetningar á Akureyri fara fram á Slökkviliðsstöðinni. Mynd/Margrét Þóra.
Bólusetningar á Akureyri fara fram á Slökkviliðsstöðinni. Mynd/Margrét Þóra.

Alls bárust 880 skammtar af AstraZeneca bóluefninu og 240 skammtar af Pfizer bóluefninu á Norðurlandið í gær. Fram kemur á vef HSN að Pfizer bóluefnið verði nýtt til að klára fyrri bólusetningu hjá þeim sem eftir eru í hópi 80 ára og eldri og fyrri bólusetningu hjá heilbrigðisstarfsmönnum sem eru eldri en 65 ára. Þá verður haldið áfram að bólusetja eldri íbúa eftir því sem bóluefnið berst og meginreglan er að bólusetja þá elstu fyrst.

AztraZeneca bóluefnið verður nýtt til að bólusetja m.a. starfsmenn á hjúkrunar- og dvalardeildum, slökkvilið og aðra heilbrigðisstarfsmenn. Næstu hópar sem fá AztraZeneca eru þeir sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eru 65 ára og yngri og verður sá hópur bólusettur á næstu vikum eftir því sem bóluefni berst.

Á Akureyri fer bólusetning fram á slökkvistöðinni og verður fólk boðað með sms skilaboðum þar sem tími og staðsetning kemur fram en hringt verður í þá sem ekki hafa skráðan farsíma. Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi fær fólk boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.

 

Nýjast