13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Bólusetning barna hefst í næstu viku
Stefnt er að því að bólusetning barna hefjist um miðja næstu viku á Akureyri. Heilsugæslustöðin og aðgerðastjórn vinna saman að verkefninu en horfið hefur verið frá því að bólusetja í skólum og þess í stað ákveðið að nýta aðstöðu á slökkvistöð þar sem bólusetningar hafa farið fram hingað til og þykir hafa reynst vel.
Byrjað verður á að bólusetja grunnskólabörn og í framhaldi af því leikskólabörn.
Á heimasíðu HSN kemur fram að allir sem að verkefninu koma séu nú að undirbúa framkvæmd bólusetninganna til að allt gangi eins best verður á kosið. Þá sé lögð áhersla á öryggi, trúnað og að upplifun barnanna verði góð.
Heilsugæslan skipuleggur fyrirkomulag bólusetninganna og eru skólahjúkrunarfræðingar þar í lykilhlutverki. Læknir og sjúkraflutningamenn verða líka á bólusetningastað.
Boðanir og samþykki
Bólusetning er alltaf val.
Foreldrar sem eru með forræði (lögheimilisforeldrar) munu fá skilaboð þar sem þeim verður boðið að:
- skrá barn sitt í bólusetningu
- skrá aðra aðila sem heimilt er að fylgja barninu í bólusetningu
- hafna/bíða með bólusetningu
Þegar foreldri hefur skráð barn sitt í bólusetningu fær foreldrið sent strikamerki. Það er á ábyrgð foreldra að senda strikamerkið áfram ef það vill að einhver annar fylgi barninu í bólusetningu. Það að sýna strikamerki á bólusetningastað er því ígildi samþykkis.