Bjarni hættir sem forstjóri SAk
Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, hættir störfum næsta haust en hann tilkynnti starfsfólki sjúkrahússins tíðindin í morgun. Í bréfi Bjarna til starfsmanna segir hann að hann sé á þeim aldri að fara að njóta þess skemmtilega kafla ævinnar sem nefndur hefur verið þriðja æviskeiðið.
"Ég hef því ákveðið að láta af störfum sem forstjóri sjúkrahússins í lok september nk. og hefur ráðherra fallist á þá beiðni mína," segir Bjarni í bréfinu.
Staða forstjóra verður auglýst laus til umsóknar á næstunni.