Birkir Blær í undanúrslit

Birkir Blær Óðinsson syngur af innilfun til foreldra sinna. Mynd: Tv4 Idol/skjáskot Instagram
Birkir Blær Óðinsson syngur af innilfun til foreldra sinna. Mynd: Tv4 Idol/skjáskot Instagram

Birkir Blær Óðinsson er óstöðvandi í sænsku Idolsöngkeppninni. Í gærkvöld var hann kosinn áfram í undanúrslit keppninnar.

Í gær flutti hann lagið Finally með James Arthur.

Sem fyrr vakti hann mikla hrifningu dómara sem sögðu að allir væru stoltir af hinum og kominn tími til að hann væri það sjálfur.

Fyrirkomulagið í gærkvöldi var ólíkt því sem áður hefur verið. Hingað til höfðu áhorfendur heila viku til þess að kjósa en í kvöld fluttu keppendur lög sín og síðan var kosið strax í kjölfarið.

Eins og endranær var sérstakt þema í þættinum og að þessu sinni var það ástin. keppendur áttu að syngja lag sem þeir tengja við einhvern kærkominn sér.

Birkir Blær tileinkaði flutninginn foreldrum sínum.

Nýjast