Bíladagar hefjast á morgun-Áhersla lögð á að allir virði siðareglur
Fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarstofu, Bílaklúbbi Akureyrar, umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili funduðu nýverið um Bíladaga 2021 sem hefjast á morgun, fimmtudaginn 17. júní, og lýkur formlega með bílasýningu laugardaginn 19. júní.
Mikil áhersla verður lögð á að allir virði siðareglur Bíladaga og tekið verði hart á þeim brotum sem kunna að koma upp, líkt og gert hefur verið síðustu sumur. Þá gildir einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA, er fram kemur í frétt á vef Akureyrarbæjar.
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða sýnileg á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram. Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar hafa komið upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og óvarlegan akstur sem er að sjálfsögðu bannaður eins og ávallt.
Siðareglur Bíladaga:
- Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn
- Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti
- Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar
- Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir
- Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra
- Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt