Banaslys við Framhaldsskólann á Laugum
02. febrúar, 2022 - 18:13
Egill Páll Egilsson - egillpall@vikubladid.is
Banaslys varð við Framhaldsskólann á Laugum í Reykjadal þegar 19 ára gamall karlmaður varð fyrir bíl við skólann í dag. Greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Í tilkynningunni kemur fram að nokkrir nemendur úr skólanum hafi orðið vitni að slysinu og áfallateymi Rauða krossins hafi verið virkjað til að hlúa að þeim.
Rannsókn á tildrögum slyssins er á frumstigi.
Nýjast
-
Endurreisnartónleikar Hymnodiu og SCS í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag
- 14.11
Hymnodia, norræna endurreisnarhljómsveitin Scandinavian Cornetts and Sackbuts og Ágúst Ingi Ágústsson, stjórnandi Cantores Islandiae, flytja gullfallega ítalska, spænska og enska endurreisnartónlist á tónleikum í Akureyrarkirkju sunnudaginn 17. nóvember kl. 17. -
Frambjóðendur í Norðausturkjördæmi mætast í Hátíðarsal HA á morgun
- 14.11
Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) með aðstoð Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) standa fyrir pallborðsumræðum með frambjóðendum í Norðausturkjördæmi á morgun, föstudaginn 15. nóvember kl. 12:00 í Hátíðarsal HA. Einnig verður streymt frá viðburðinum á Vísi og YouTube-rás Háskólans á Akureyri fyrir þau sem hafa ekki tök á að mæta á staðinn. -
Bæjarráð vill aðflugsferla við Akureyrarflugvöll endurbætta hið fyrsta
- 14.11
Segja má að Bæjarráð Akureyrar láti ÍSAVIA heyra það í samþykkt sem ráðið lét frá sér fara eftir fund ráðsins í dag. Óánægja bæjarráðs er vegna tafa við gerð nýrra aðflugsferla fyrir flug úr suðri að Akureyrarflugvelli. -
Vegagerðin tekur kafla Hjalteyrarvegar af þjóðvegaskrá
- 14.11
Vegagerðin hefur tilkynnt Hörgársveit að breyting verði gerð á afmörkun Hjalteyrarvegar – 811 og verður hluti hans þar með felldur úr tölu þjóðvega og af vegaskrá. Allir vegir hér á landi eru skilgreindir eftir vegalögum. -
Matargjafir ganga í endurnýjun lífdaga fyrir jólin
- 14.11
„Þar sem að ég virðist ekki geta slitið mig frá Matargjöfum (held að við séum ein eining) þá hef ég ákveðið að halda áfram í breyttri mynd 11. jólin okkar saman,“ skrifar Sigrún Steinarsdóttir á facebook síðu Matargjafa á Akureyri og nágrenni. Hún opnaði fyrr í vikunni reikning Matargjafa og vonar að þeir sem áður lögðu henni lið með mánaðarlegu framlagi haldi því áfram, „því án ykkar er þetta ekki hægt.“ -
Öruggari samgöngur í Fjallabyggð
- 14.11
Á undanförnum árum hefur Fjallabyggð staðið frammi fyrir krefjandi áskorunum tengdum veðurfari. Foktjón hefur orðið í óvæntum ofsaveðrum og úrkomumynstur virðist vera að breytast með tilheyrandi álagi á innviði. Endurteknir úrkomuviðburðir hafa leitt til flóða, nú síðast síðsumars þegar vatn flæddi inn í fjölmörg hús. Þá var Siglufjarðarvegi um Almenninga lokað í nokkra daga vegna skriðufalla og tjóns sem hlaust ef þessu mikla vatnsveðri og hættu á grjóthruni. Sprungur í veginum vegna viðvarandi jarðsigs opnuðust enn frekar. Þessi atburðarrás hefur undirstrikað mikilvægi þess að styrkja og bæta samgöngur inn í sveitafélagið, sem eru lífæð samfélagsins. -
Afleit veðurspá á morgun sýnum gát
- 14.11
Spáð er afar slæmu veðri seinnipart föstudagsins 15. nóvember. Óttast er að sambærilegar aðstæður gætu skapast á Akureyri og í september 2022, þegar sjór flæddi yfir hluta Oddeyrar og olli miklu tjóni. -
Kvikmynd um Kröflu sigraði á Landkönnunarhátíð á Húsavík
- 13.11
Alls voru níu kvikmyndir sýndar á hátíðinni sem haldin var í 10. sinn -
Oddvitar í Norðausturkjördæmi mætast í beinni útsendingu
- 13.11
Oddvitar framboðanna til Alþingis mætast í kvöld í beinni útsendingu á RÚV og vef Vikublaðsins . Rætt verður um áherslumál framboðanna í kjördæminu.