Bæjarstjóri Akureyrar kom færandi hendi
Fimmtudaginn 2. september 2021 kom Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, færandi hendi á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings á Húsavík. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins.
Ásthildur afhenti Kristjáni Þór Magnússyni, sveitarstjóra Norðurþings, forláta ljósmynd af Húsavík í veglegum ramma. Gjöfinni fylgdi skjal, þar sem fram kemur að hún sé gefin í tilefni 70 ára afmælis kaupstaðaréttinda yngsta kaupstaðar norðurlands, en Húsavíkurkaupstaður hlaut kaupstaðaréttindi 1. janúar 1950.
Forsagan er hinsvegar sú að Húsavíkurkaupstaður færði Akureyrarbæ myndina að gjöf á aldarafmæli kaupstaðarréttinda Akureyrar þann 29. ágúst 1962. Á myndinni eru tveir silfurskildir. Á öðrum þeirra kemur fram í áletrun „Yngsti kaupstaður Norðurlands, Húsavík, árnar elzta kaupstaðnum, Akureyri, höfuðstað Norðurlands, allra heilla á aldarafmæli kaupstaðarréttinda hans. 29. ágúst 1962. Bæjarstjórn Húsavíkur“. Hinn skjöldurinn inniheldur vísu Huldu um Húsavík „ Opið haf og heiðkvöld skær, Þér himin gaf, Glóir vafinn Garðarsbær, Í geislatraf“.
Ljósmyndin var tekin af Óla Páli, líklega sumarið 1962.
Í skjali stendur:
"Sveitarfélögin eru bæði í fararbroddi þegar kemur að endurvinnslu og endurnýtingu. Því er við hæfi að Akureyrarbær endurnýti gjöf sem bæjarstjórn Húsavíkurkaupstaðar færði Akureyri, höfuðstað Norðurlands, á aldarafmæli kaupstaðaréttinda Akureyrar 29. ágúst 1962. Þessari fallegu ljósmynd verður vonandi fundinn góður staður í Stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík þar sem hún mun sóma sér hið besta."