Bæjarráð Akureyrar Engar forsendur fyrir skólahaldi í Grímsey
Ekki eru forsendur fyrir skólahaldi í Grímsey. Fræðslu- og lýðheilsuráð hafði áður samþykkt fyrir sitt leyti að endurvekja skólahald í Grímsey á vorönn 2024, að því gefnu að þrír nemendur væru að hefja þar skólagöngu og vísaði málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkti hinsvegar í morgun á fundi sínum að ekki væru forsendur fyrir skólahaldi.
,,Bæjarráð leggur áherslu á samfellda skólagöngu barna og greiðan aðgang að frístundastarfi í samræmi við barnalög nr. 76/2003 og því sé réttast að barn gangi aðeins í einn skóla, þar sem aðgangur að frístundastarfi er góður. Þó ríkir skilningur á aðstæðum fjölskyldna, þar sem annað foreldri stundar sína atvinnu að stórum hluta í Grímsey. Vilji er til að koma til móts við foreldra barna sem eiga búsetu í Grímsey með auknum sveigjanleika til náms með stuðningi frá skóla barns, í allt að þrjár vikur á önn. Felur bæjarráð sviðsstjóra fræðslu- og lýðheilsusviðs að skapa þá umgjörð í samstarfi við skóla barnanna og kynna hana foreldrum. Upplýsingaöflun hefur leitt í ljós að ekki séu forsendur til skólahalds í Grímsey.“