Auknar fjárfestingar á Norðurlandi eystra
SSNE er að hefja undirbúning áhersluverkefnis Sóknaráætlunar Norðurlands eystra sem snýr að því að fá auknar fjárfestingar í landshlutanum. Greint er frá þessu á vef SSNE.
Verkefnið felst meðal annars í því að greina fjárfestingartækifæri á Norðurlandi eystra í samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu. Ráðgert er að vinna með hverju sveitarfélagi fyrir sig og greina kosti og áherslur hvers sveitarfélags.
Verkþættir:
- Sveitarfélag óskar eftir að taka þátt í verkefninu.
- Fundur verkefnastjóra með sveitarstjóra til kynningar á verkefninu.
- Netkönnun lögð fyrir sveitarstjórn.
- Vinnustofa - fundað með sveitarstjórn og farið yfir niðurstöður netkönnunar. Fjárfestingartækifæri greind, annarsvegar 1-2 stór verkefni sem kalla á aukna innviði og taka lengri tíma og hins vegar 1-2 smærri verkefni sem kalla ekki á aukna innviði og hægt að hefjast handa við strax.
- Verkefnastjórar draga saman niðurstöður og kynna fyrir sveitarfélaginu.