27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Aukinn trjágróður á svæði sem voru óvarin fyrir norðlægum vindáttum
Mth@vikubladid.is
Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt deiliskipulag að nýju Móahverfi, sem er íbúðasvæði vestan Borgarbrautar í Síðuhverfi og að það verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu fyrir svæðið.
Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið unnið úr ábendingum frá íbúum og öðrum þeim sem hagsmuna eiga að gæta auk þess sem vindgreining var gerð ásamt frekari skoðunum á svæðinu. Í kjölfarið voru gerðar nokkrar breytingar frá upphaflegri tillögu.
Torgið flyst nær Borgarbraut
Helstu breytingar sem voru gerðar á skipulaginu voru að torg flyst nær Borgarbraut ásamt byggingum í kring og er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustusvæðum á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum. Þá er trjágróðri bætt við á svæðum sem voru óvarin fyrir norðlægum vindáttum og eins var legu og lögun nokkurra fjölbýlishúsa breytt m.a. vegna niðurstöðu vindgreiningar.
Þá er gert ráð fyrir íþróttasvæði syðst á skipulagssvæðinu og er mögulegt að koma þarf fyrir sparkvöllum eða samfelldu gras/gervigrassvæði. Eins er undirgöngum undir Borgarbraut á móts við gönguás bætt við og grænu svæði sem liggur mitt í gengum allt hverfið.
Skipulagið hefur verið auglýst formlega og er hægt að skila inn athugasemdum til og með 25. apríl næstkomandi.