13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Ásrún Ýr sækist eftir oddvitasæti Vinstri grænna
Ásrún Ýr Gestsdóttir býður sig fram í oddvitasæti á lista Vinstri grænna á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hún tilkynnti um framboðið á félagsfundi VG á Akureyri og nágrenni í gærkvöld. Akureyri.net greindi fyrst frá.
„Ég hef gegnt ýmsum störfum fyrir VG bæði innan sveitarfélagsins og á landsvísu. Á líðandi kjörtímabili hef ég setið fyrir hönd VG í frístundaráði og núna hinu nýja sameinaða fræðslu- og lýðheilsuráði Akureyrarbæjar. Ég hef einnig setið sem varaformaður svæðisfélags VG Akureyrar og nágrennis síðustu fimm ár,“ segir Ásrún Ýr í tilkynningu.
„Ég bjó í 11 ár á neðri Brekkunni á Akureyri en flutti á æskuslóðirnar í Hrísey í lok síðasta árs með eiginmanni mínum og börnum. Börnin ganga nú í Hríseyjarskóla eftir að hafa varið leikskólaárum og fyrstu bekkjum grunnskóla á Akureyri. Ég starfaði lengst af á öldrunarheimilinu Hlíð og í Krambúðunum báðum þegar ég bjó á Akureyri. Ég stunda nám við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri þar sem ég legg áherslu á byggðaþróun.
Ég hlakka til að takast á við það krefjandi verkefni sem forval VG verður.“