Allir nemendur í eldri bekkjum Giljaskóla fá snjalltæki

Mynd/akureyri.is
Mynd/akureyri.is

Giljaskóli steig á dögunum það stóra skref í stafrænni vegferð að útvega öllum nemendum frá 5. bekk eitt tæki á mann til afnota í skólastarfinu. Hver nemandi í 5. - 7. bekk hefur nú til umráða sinn iPad og nemendur 8. - 10. bekkjar hafa hver sína Chromebook tölvu. Í 1. - 4. bekk deila tveir nemendur einum iPad. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.

Þar segir að Giljaskóli hafi markvisst aukið við tæknibúnað skólans síðustu árin. 

„Við erum afar ánægð með þessa þróun hjá okkur og teljum við okkur nú hafa aukna möguleika til að mæta þörfum nemenda og stuðla að framþróun í skólastarfi,“ segir á heimasíðu Giljaskóla. 

Með spjaldtölvuinnleiðingunni gefast aukin tækifæri til að:

  • Einstaklingsmiða nám og mæta þörfum hvers og eins.
  • Auka ábyrgð og sjálfstæði nemenda í námi með hjálp tækninnar.
  • Nemendur birti hæfni sína á fjölbreyttan hátt.
  • Auka aðgengi að upplýsingum.
  • Efla samskipti og samvinnu með tæknilegum úrlausnum.
  • Útvíkka námsumhverfi nemenda.
  • Efla læsi í víðum skilningi. Að nemendur geti notað tæknina, fundið það sem þeir þurfa þegar þeir þurfa, geta greint upplýsingarnar, búið til efni fyrir aðra og hugað að þeirri siðferðilegu ábyrgð sem þetta flókna umhverfi krefst.

Í Giljaskóla er mikil áhersla lögð á upplýsingatækni og er m.a. starfandi sérstakur verkefnastjóri sem stýrir uppbyggingu á stafrænni tækni ásamt því að styðja við kennara í ferlinu. Kennarar skólans hafa síðustu árin byggt upp góða þekkingu á því að nýta tækni til kennslu og náms og er það trú stjórnenda og starfsfólks að það skili sér í því að nemendur útskrifist með þá færni sem þarf til að takast á við nám og störf í stafrænum heimi. 

Nýjast